21.05.2008 22:07:42 / una

Hvað getur maður annað sagt enn:

Glory glory Man united,
Glory glory Man united,
Glory glory Man united,
As the reds go marching on on on!

Just like the busby babes in days gone by,
We’ll keep the red flags flying high,
Your gonna see us all from far and wide,
Your gonna hear the Messes that sing with pride.

United, Man united,
We’re the boys in red and we're on our way to Wembley!

Wembley, Wembley,
We're the famous Man united and we're going to Wembley,
Wembley, Wembley,
We're the famous Man united and we're going to Wembley

In Seventy-Seven it was Docherty 
Atkinson will make it Eighty-Three 
And everyone will no just who we are,
They'll be singing que sera sera

United, Man united,
We’re the boys in red and we're on our way to Wembley!

Wembley, Wembley,
We're the famous Man united and we're going to Wembley,
Wembley, Wembley,
We're the famous Man united and we're going to Wembley

Glory glory Man united,
Glory glory Man united,
Glory glory Man united,
As the reds go marching on on on!

Glory glory Man united,
Glory glory Man united,
Glory glory Man united,
As the reds go marching on on on!

Glory glory Man united,
Glory glory Man united,
Glory glory Man united,
As the reds go marching on on on!


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 02:43:10 / una

Magic - veitir þér orkuna

Ég myndi segja það að magic veiti manni orkuna.. Allavega er klukkan að verða hálf 3 og Unan enþá vakandi .. að læra :P
Ég get nú ekki kvartað þar sem að eftir að minnska kosti um 8 klst verð ég komin í sumarfrí frá Fjölbrautarskólanum Úr Ármúla..
Hversu þægilegt verður það að þurfa ekki að vakna og byrja á því að hugsa um að læra :) það verður nice :P

En þar sem sumarfríið er að koma.. Þá veit ég ekki hvar ég ætla að vinna
Er það Bónus mosó eða Kirkjugarðurinn Sigló?

Seinasta sumar gerðist það oft að Bingerinn (bíllinn Ollu) varð bensínlaus og tóku kannski margir eftir því þegar ég ýtti bílnum niður aðalgötuna, og þegar við vorum oft dregnar niðrá bensínstöð. Ég hef nú verið með bílpróf í rúm 2 ár og ég hef ekki tölu yfir það hversu oft ég hef orðið bensínlaus.
Seinasta föstudag ætlaði ég að mæta snemma í skólann og lesa smá í hagfræðinni áður en ég færi í prófið.
Klukkan 8 á föstudagsmorgni var ég mætt uppá vesturlandsveg á bingernum í allri morgunnumferðinni. Þegar ég var nýbúin að keyra fram hjá löggunni sem var útí kannti, virkaði alltíeinu bensíngjöfin ekki, þannig að ég var orðin bensínlaus. Við erum að tala um það, að ef ég hefði orðið bensínlaus nokkrum metrum fyrr, þá hefði ég stoppað fyrir framan lögguna, á náttfötunum, á bíl þar sem önnur rúðuþurkan virkar, ökuskírteinislaus.. Hversu gaman hefði það verið?

Seinna um daginn fórum við og sóttum Bingerinn litla 
Hversu töff er þetta ? :)

Hvítasunnuhelgin var alveg geðveik.. Fór í bæjinn fagra og djammaði báða dagana..
Á föstudagskvöldinu fór ég á Snilldin ein og var það geggjað 

Hér má sjá nokkra undurfagra siglfirðinga ;)


Á laugardagskvöldið fór ég á Pup quiz með Birgittu og Steina og vildi svo skemmtilega til að við unnum tónlistarhlutann.
Vinningurinn var 6 flöskur af grolsh bjór .. sem voru 1,5 litrar hver ;) 

Alveg ágætlega stórar flöskur..
Þetta var geggjuð helgi, enda ávallt gaman að komast heim í besta fjörðinn ;)

Jæja, þar sem ég er að fara í bókfærlsupróf á morgunn.. þá held ég að það sé málið að reikna pínu meira ..

I´m off..

Enn, svona í lokin ætla ég að láta mynd af Ollu syss,en hún er einmitt að fara taka þátt í "thehottestgirlonline.com" 

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 03:03:15 / una

Prófatíðin á fullu..

Mig langaði bara að blogga smá til að sýna ykkur hvað ég er dugleg..
En eins og er, er klukkan hjá mér 3:01 og ég sit hérna í stofunni og er að læra fyrir stærðfræðiprófið mitt sem er eftir 5 og hálfan tíma.
Ég er EKKI að fara að falla í neinu þessa önninna..
Eins og er, er ég bara búin að fara í eitt próf..
og ég rústaði því :D Geri aðrir betur en að skrifa stanslaust í klukkutíma um hávamál og völuspá :P

Jæja.. ég ætla að halda áfram að undirbúa mig í að rústa öðru prófi

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 16:35:59 / una

Hver kannast ekki við tiltekt við prófalestur?

Jáá.. nú fara prófin að byrja og eru ekki nema 9 dagar í mitt fyrsta próf. Ég ákvað að taka þessa helgi og vera dugleg að læra, svo ég fái nú góðar einkunnir í vor :P
Ég byrjaði í gær um svona hálf 7 leytið því ég  kom mer ekki í gang strax eftir skóla, enn ég sat til klukkan 10 og var að læra ýmislegt eins og t.d. um Gríms sögu loðinkinna. Mjög skemmtileg saga. Eins og ég sagði ætlaði ég að vera dugleg að læra þessa helgi og ákvað ég þá að vakna snemma í morgunn, eða klukkan 9.
Kella stóð við það. En í staðin fyrir að byrja að læra, tók ég frekar til í herberginu mínu :o klukkan nííu á laugardagsmorgni..
Kannast einhver við það að þurfa alltaf að taka til þegar þeir eru að læra fyrir próf? :P Allavega er ég mjög dugleg í því. Enda ætlar pabbi að skilja eftir smá sandpappírsbút hérna á pallinum í prófatíðinni og gá hvort pallurinn pússist ekki eitthvað smá :)
Annars hef ég ekki verið alltof dugleg í dag, en það er líka góð ástæða fyrir því.. Það var af því að ég var að læra í dönsku. Sem er náttúrulega alveg drepleiðinlegt. Þegar ég var að lesa fyrstu söguna drakk ég einn magic, tók tvær orkutöflur og náði að halla mér í rúmið af stólnum sem ég sat á og dottaði þannig í einhverjar mínútur. Mjög þæginlegt, enda var ég hress í 10 mínútur eftir þetta :P

Núna sit ég hérna útá palli að læra.. Lesa eina dönskusöguna

Ótrúúlega kósý :P
Enn það skemmtilega er, að á mælinum okkar stendur að það séu 31,33°.. Ég get nú ekki alveg verið sammála því en hér er samt alls ekki kallt.

Næstu dagar fara svo bara í að lesa og verða gáfuð fyrir prófin. Maður ætlar þú ekki að falla í þessu nuna :P
Ætla einmitt að halda áfram núna..
Kem nú með annað blogg bráðlega :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 01:56:03 / una

..

Ég bið um of mikið í þessum heimi..

True?


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 00:23:52 / una

Hver er sætastur?

Ég held að hundurinn minn sé það..



Ég sakna hans mest í heimi!


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 23:53:34 / una

Addi er kærastinn minn

og ég elska hann og dýrka hann útaf lífinu :*

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 09:33:13 / una

Hey biatches

Kominn tími á smá blogg?
jáá.. ég myndi  nú segja það
Ég veit að ég hef verið löt við að blogga undanfarið, en það er bara vegna tímaleysis og orkuleysis.
Ég er nefninlega í skólanum frá 8 – 15:10 svona oftast allavega, fer þá beint í vinnunna og þaðan fer ég annað hvort heim að læra eða á Þjóðarbókhlöðuna. Þannig að þá er lítill tími eftir af sólarhringnum til þess að slappa af og koma með eitt stykki blogg.
En núna er ég að blogga, því ég er í tveggja tíma eyðu og bara nenni engan veginn að fara strax inná bókasafn að læra. Ég kemst ekki heim í þessari eyðu, af því að það komu nokkur snjókorn á götuna og þá kann enginn að keyra og allt stopp útaf árekstrum. (Sá t.d. 3 árekstra í gær, og tveir bílar af þeim voru í klessu)
Reyndar komst Bingerinn (Golfinn) ekki út götuna í dag útaf snjónum, þannig að ég fór bara með pabba.
En semsagt, frá því ég kom til rvk. Þá hef ég átt einn dag til að slappa af. Ég væri alveg til í fleiri svoleiðis daga, til að safna smá orku í kroppinn.
Ég þarf bara að vera dugleg að vinna núna, af því að ég er að fara til Portúgal þann 5 júní, og ég nenni ekki að vera blönk úti :P Ég, Steffý, Álfhildur og Olla erum að fara að heimsækja Báru í 2 vikur. Þetta verður alveg geggjuð ferð skal ég segja ykkur :)
Svo fæ ég kannski að fara til Tyrklands með Ollu í útskriftaferðinni hennar. Ég ætla nefnilega ekki í útskriftaferðina í þessum skóla.
Þessi helgi er vinnuhelgi hjá mér. Þannig að ég er að vinna líklegast frá 7-18:30 á laugardaginn og 8 til 18:30 á sunnudaginn. Reyndar er Addi að koma til mín, þannig að þetta verður ekki alslæm helgi :P
Þar næstu helgi ætlum við svo á Sigló. Ég get ekki beðið, þar sem ég var síðast á Sigló þann 3 jan, og núna í dag er 7 feb þannig að ég er ekkib úin að fara heim í rúman mánuð sem er of langt fyrir mig.Þannig að ef þið vitið um far , þá megiði láta mig vita :) btw.. Þá er þorrablót í íþróttahúsinu þessa helgi.. Ætla e-ir að fara?
Seinast helgi var líka alveg geggjuð. Fór til Akureyrar. Þvílíkt magn af snjó þar. En það var bara besta helgi í heimi sko. Við gerðum lítið annað en að chilla. Sem var best í heimi. Þarf að eiga fleiri svona helgar.

Jæja.. ég ætlaa að fara að gera eitthvað að viti :P
Bæjó

Eitt enn..
Þar sem Örvar er alltaf nálægt mér, þá þarf ég nú allavega að minnast á hann nokkrum sinnum í blogginu.. Hérna Örvar minn:
ÖrvarÖrvarÖrvarÖrvaÖrvarÖrvarÖrvarÖrvarÖrvarÖrvar :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 23:50:49 / una

Ég..

.. er

alltof

löt

við 

blogga

..

sammála?

:)   


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 22:40:04 / una

Haaallló

Jæja, þar sem það var byrjuð að koma lykt af hinu blogginu mínu þannig að ég ætla að koma með nýtt og ætla að byrja það á skemmtilegri frétt sem ég var að lesa.. 

Tíu ára gamall mexíkóskur drengur, sem vildi ekki fara í skólann eftir jólafríið, fann óvenjulega leið til að sleppa við að sækja tíma. Hann límdi sig fastan við rúmið sitt.

„Ég hélt, að ef ég væri límdur við rúmið gætu þau ekki látið mig fara í skólann, sagði drengurinn, sem heitir Diego, við AFP fréttastofuna.

„Ég vildi ekki fara í skólann, þar var svo skemmtilegt í jólafríinu. Ég mundi eftir því að mamma hafði keypt mjög sterkt lím," sagði hann.

Um var að ræða skólím og drengurinn límdi höndina á sér við höfðagaflinn, sem er úr málmi. Hann sat fastur við rúmið í tvo tíma. Móðir drengsins gat ekki losað hann og kallaði til lögreglu og bráðaliða.

Á meðan björgunarlið reyndi að losa drenginn með leysiefnum sat hann og horfði á teiknimyndir í sjónvarpinu. 

„Ég veit ekki hvað gerðist því hann er venjulega afar þægur," sagði móðir hans. Diego var sendur í skólann eftir að hann losnaði.

 .. Mér finnst þetta sko algjör snilld :P

Enn annað..
Ég er komin suður og byrjuð í skólanum. Get ekki sagt að það sé mjög skemmtilegt af því að daginn áður en ég fór suður, byrjaði ég að farast úr verkjum í bakinu. Daginn sem ég fór suður, fór ég til læknis og það var eitt stykki sterasprauta og svo er aðal nammið mitt búið að vera parkódín forte og íbúfen :P
Þannig að ég get ekki setið lengi, og labba alltaf skökk, og það er ekkert skemmtilegt að byrja nýjan skólaferil á því

En þetta er sko allt öðruvísi kerfi þarna heldur en í vma. Hver tími þarna eru 50 mínútur, og engar skólabjöllur.. en þetta verður vonandi fljótt að venjast :)
Það sem er svo skrýtnast að þegar maður mætir of seint í tíma, þá þarf maður að skrifa nafnið sitt uppá töflu.Ekkert smá skrýtið

Um helgina ætlar Addi að reyna að koma suður, og ég get ekki beðið :*
Ætla að vona að það gangi upp, því ég sakna hans svo hræðilega :**

Jæja, ég ætla að fara að taka til í herberginu mínu, eða réttara sagt taka uppúr töskunum og raða inní skáp

Bæjó :)
 


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 21:22:10 / una

Hææ

jæja..

ég fer bráðum að blogga

enda kominn tími til

... right? 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 21:39:05 / una

Hin perfecta jólagjöf

Jæja.. ég er búin að finna jólagjöfina sem ég ætla að gefa mömmu og Halldóri í jólagjöf.
Mér fannst robotryksugan mjög sniðug (hugsaði náttúrulega bara um að þá gæti ég nýtt mér hana svo ég þyrfti aldrei að ryksuga herbergið mitt) en hún er svo andskoti dýr..
Ég fór á netið og skoðaði aðrar ryksugur og sá eina svaka flotta

Eftir betri athugun fann ég aðra betri og flottari..

Hvernig finnst ykkur?

hahaha :D

djóók, ekki alveg það sem ég er að hugsa um.. en samst flottar ryksugur ;) híhí

Eennn, annað :)
Eins og margir hafa séð, þá heitir ég - takið mig til fyrirmyndar, Unið ykkur
á rúntinum síðustu helgi voru Biggi og Örvar að koma með nýtt..

- biggið ykkur
- örvið ykkur

heitið þið jafn sniðugum nöfnum og við og getið sagt svona um ykkur? :)

 Jæja, ég er farin að skila myndinni sem ég leigði í gær og horfði ekki á :P
-bless


» 12 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 13:43:32 / una

Unun

" 27.11.2007 18:18:09 / Ívar Elefsen / http://123.is/elefsen
Ívar Elefsen skrifaði
jææææja.... "


Þegar það eru farin að koma svona komment, þá er kominn tími til að blogga
er það ekki?

Í dag eru nákvæmlega 5 dagar í fyrsta prófið mitt! Ég er ekki alveg að trúa því samt.
Ég á bara einn verslunarreikningstíma, einn bókfærslu, 2 spænsku og einn stærðfræði. Þá er þetta bara komið held ég. Mér fannst ég vera vinna sem flokkstjóri fyrir bara nokkrum vikum. Skrýtið..

Ennn,eins og flestir vita, þá heiti ég "Una - takið mig til fyrirmyndar .. Unið ykkur" á msn.
Það er ástæða fyrir því!
Flestir vita nú hvað að una sér þýðir..
Það er komin ný merking á þessu orði, sem er nú þekkt í allavega VMA, MA og MS.
En nýja merkingin er eftir mér og þýðir:
Að mæta í skólann, taka lúrinn þar og fá mætingu, í staðin fyrir að lúra heima og fá skróp!!
Þetta er hin nýja merking og mæli ég með því að sem flestir prófa. Mjög þægilegt sko
um daginn skildi ég síman minn eftir inní herbergi á meðan ég fór að læra á setustofunni á vistinni. þegar ég kom til baka, þá var hann nákvæmlega svona:

Olla systir var víst í einhverjum leik, og leiddist í honum greinilega þannig að hún ákvað að hringja í mig á meðan hún var í leiknum og þetta varð útkoman.. mynduð þið nenna þessu? :)

En ég var að fá óóóendanlega góðar fréttir frá Birgittu. ÉG ER AÐ FARA Á TÓNLEIKA Á LAUGARDAGINN MEÐ BESTU HLJÓMSVEIT Í HEIMI ... Hjálmum.

Ég reddaði mér fari niður í Glerártorg og keypti mér strax diskinn..
Sniðug? :D
en jæja, ég er farin að keppa í Pez og vinna :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 15:31:16 / una

Staffadjamm Plaza

Jæja, loksins er ég búin að ná að láta myndirnar á netið frá því á staffadjamminu, þannig að ég get bloggað :)

Þetta byrjaði með því að flestir mættu um 12 leytið og var bara gert sig tilbúin fyrir óvissuna. Við byrjuðum á að fara með rútu útá Hrafnagil að sækja Elvu. Fórum svo á sveitabæ þar sem við fórum í leiki, og þ.á.m. boðhlaup með skoti og svo hlaup í skarðið.

Hér er einmitt allt í gangi.,

Þegar við vorum búin að vera þar í einhvern tíma, settumst við upp í rútu, stoppuðum á Hrafnahili þar sem allir fengu að losa sig við smá vökva og keyrðum svo lengst í áttina að Dalvík.
Stoppuðum svo á stað þar sem paintball er komið núna og fórum í paintball. En það var nú ekki venjulegt paintball heldur var þetta með svona bogum

Þarna er ég einmitt með kalla bogann.. Ekkert smáá erfitt að toga þetta út


Og Óli..

Elvar.. Sem náði svo að fá huge marblett eftir bogann, sem enginn annar fékk held ég :P


Og allir að pósa að sjálfsögðu

Þegar þessum erfiðleikum var lokið keyrðum við aftur niður á Plaza. Ég var alveg viss um að við værum að fara í sund vegna þess að allir mættu með sundföt. En heldur betur ekki. Næst tók við ratleikur. Stelpur á móti strákum. Ég myndi nú segja að við höfum unnið þetta, en það fór víst jafntefli.
Síðast vísbendingin í ratleiknum var einmitt niður í Stjörnusól, þar sem allir fengu að fara í ljós og svo pottinn á eftir.
Agnes fékk mig til þess að fara í langan-sterkan-túrbó lampa og guð minn góður hvað það var heitt á tímabili.

Óli og brunarústirnar..

Nokkrir komnir

Mjög kósý stemning eins og þið sjáið..


Elvar hérna með óskiljanlegu hvítu punktana sína

Eftir pottinn fóru allir niðra plaza bara og gerðu sig ready fyrir kvöldið.

Elva komin í spariskóna sína og svona..

Þegar allir voru til fengum við okkur að borða þennan dýrindismat


Svo var bara drukkið og spjallað og farið svo í vip partýið hjá Palla

Skvísurnar mættar


Allir fengu neonljós

Jóna töffari

Og við frænsystkinin líka..
Eftir partýið fórum við niður á plaza aftur í smá tíma og loksins í Sjallan aftur þar sem hópurinn splittaðist strax vegna fjölda manns sem var þar
En þetta var geggjaður dagur og vonandi kemst ég með í næsta djamm líka :)

 ...Ég ætla svo að fara að vera duglegri í bloggunum :P


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 17:59:54 / una

Ég var einu sinni í hernum..

Djók.. fann bara þessar myndir á netinu og ákvað að skella þeim inn :)


Díana, Kolla, Agla, Adam, Aldís, Ég og Valla :D


Svo skemmtilega tilviljun var, að við urðum ekki í síðasta sæti á þessu móti.. Minnir mig :P
Allavega enduðum við með 4 stig.
1 stig - gerðum jafntefli
3 stig - Af því að stelpurnar sem við áttum að keppa við, voru farnar þannig að við "unnum" leikinn :)
En erum við annars ekki bara flott? :D 


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21